Godi.is, naut, lamb, grís, grillkjöt, uppskriftir, naggar, álegg

Vefurinn Goði.is þar sem helstu upplýsingar um Goða vörur er að finna sem dæmi má nefna nautakjöt, lambakjöt, grísakjöt, svínakjöt, grillkjöt, álegg, pylsur og naggar. Uppskriftir er hægt að finna á vef Goða

Flýtilyklar

Til sjávar og sveita

 

Surf & Turf
fyrir 4  ( Þýtt, Til sjávar og sveita þar er verið að vísa til þess að hráefnið kemur úr hafi og af landi) 

  • 4 stk Gourmet nautafíle steik
  • 1/2 tsk maldon salt
  • 1/2 pipar úr kvörn 
  • Smjör 
  • 8-12 Risarækjur eða humar

Kryddlögur  

  • 2 msk Ólífuolía
  • 1 tsk Sítrónusafi
  • 1 tsk smátt saxað chilli
  • 1 Hvítlauksrif
  • 1/4 tsk Tandori krydd
  • 1/4 tsk Salt

Sósa

  • Nautasoð
  • Sósujafnari
  • Epli
  • 1/2 tsk Timian

Flysjið eplin og skerið niður í litla teninga setjið þá saman við nautasoðið og bragðbætið með timian, salti og pipar. Þykkið að endingu soðið með sósujafnaranum.

Aðferð

Blandið saman kryddlöginn og látið rækjurnar liggja í honum í um 20 mínútur. Steikið kjötið á vel heitri pönnu í 2 mínútur á hvorri hlið. Setjið það síðan inn í 180°C heitan ofn í 4-5 mínútur (medium rare). Setjið nú kryddlöginn ásamt rækjunum, og hitið á lágum hita að suðu. Takið kjötið úr ofninum og látið það jafna sig í 4-5 mínútur áður en það er borið fram. Þræðið rækjurnar upp á trépinna 2-3 stykki á hvern pinna, stingið þeim í steikurnar og hellið kryddleginum jafnt yfir. Berið fram með steiktu grænmeti, sósunni og bakaðri kartföflu.

 

...

Innskráning

moya - Útgáfa 1.10 RC1 2006 - Stefna ehf