Flýtilyklar
Gourmet lambaærissneiðar
Gourmet lambalærissneiðar með grilluðu ferskjusalati
fyrir 4
4 Goða Gourmet lambalærissneiðar
Grillið á meðalheitu grilli í 6-7 mínútur eða eftir smekk
Ferskjusalat:
4 ferskjur
1 msk. fljótandi hunang
100g klettasalat
1 rautt chili-aldin
safi úr 1 límónu
1 mozzarella kúla
Skerið ferskjurnar í fernt, fjarlægið steininn úr þeim og penslið þær með hunangi. Grillið þær á meðalheitu grilli í 1 mínútu á hvorri hlið. Leggið klettasalatið á fat. Saxið chili-aldinið smátt og blandið því saman við klettsalatið ásamt límónusafa. Klípið mozzarella-ostinn í litla bita og dreifið þeim yfir salatið ásamt grilluðu ferskjunum. Leggið kóteletturnar ofan á salatið og berið fram.