Flýtilyklar
Suðrænt grísakjöt með hnetusalsa
Suðrænt grísakjöt með hnetusalsa
fyrir 4
4 Goða gourmet grísakótelettur með tómat-salsa
Grillið á meðalheitu grilli í 6-7 mínútur eða eftir smekk.
Hnetusalsa:
100g pekahentur
3 tómatar, saxaðir
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
4 msk. steinselja, söxuð
rifinn börkur af 1/2 sítrónu
Ristið pekahneturnar á pönnu í örstutta stund. Kælið þær og myljið gróflega. Blandið söxuðum tómötum, hvítlauk, steinselju og sítrónuberki saman við ristaðar hneturnar. Berið fram með bökuðum kartöflum og sýrðum rjóma.